Erlent

Sonur Madoffs svipti sig lífi

Bernie Madoff þegar allt gekk vel.
Bernie Madoff þegar allt gekk vel.

Sonur fjársvikarans Bernie Madoffs, hinn 46 ára gamli Mark, svipti sig lífi á heimili sínu í dag. Þetta kemur fram á fréttasíðu breska ríkisútvarpsins (BBC).

Það var fjölskyldumeðlimur sem kom að Mark í íbúð hans í Soho hverfinu í New York í Bandaríkjunum. Hann virðist hafa hengt sig.

Faðir Marks, Bernie Madoff var dæmdur í 150 ára fangelsi fyrir umfangsmesta ponzi-svindl sögunnar.

Madoff á annan son en þeir bræður störfuðu sem verðbréfamiðlarar fyrir fjölskyldufyrirtæki Madoffs en í þeim hluta sem ekki er talinn hafa tengst svindli hans.

Báðir voru þeir til rannsóknar vegna tengsla við föður sinn en ekki verið ákærðir vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×