Aspirín dregur úr líkum á krabbameini 7. desember 2010 12:00
Dagleg neysla Aspiríns getur minnkað líkur á dauðsföllum vegna krabbameins um þriðjung, ef marka má nýja rannsókn. Fjallað er um málið í fjölmiðlum víða í morgun og hafa niðurstöðurnar vakið mikla athygli. Rannsakendur frá Oxford háskóla, sem unnu rannsóknina, segja niðurstöðurnar svo afgerandi að fólk ætti að íhuga alvarlega að taka inn lítinn skammt af aspirín á degi hverjum eftir 45 ára aldur. Í rannsókn læknanna voru yfir 25 þúsund þátttakendur, sem tóku inn 75 milligrömm af lyfinu á degi hverjum, sem er fjórðungur eðlilegs dagskammts. Fimm árum eftir að fólkið hóf þátttöku í rannsókninni, minnkuðu dauðsföll vegna krabbameins um 34%. Prófessor Peter Rothwell, sem leiddi rannsóknina, segir í samtali við Sky News að ef fólk vilji draga úr líkunum á því að fá krabbamein, sé ágætis byrjun að hefja inntöku á aspiríni um miðjan fimmtugsaldurinn. Þá fari hættan á krabbameini að aukast. Rannsóknin sem var kynnt í Lancet Medical Journal, sýnir að aspirín dregur úr líkunum á krabbameini í blöðruhálskirtli um 10%, lungnakrabbameini um 30% og krabbameini í vélinda um heil 60%. Peter Elwood prófessor við háskólann í Cardiff sem hefur rannsakað aspirín til fjölda ára segir lyfið eiga rætur sínar að rekja til trjábarkar, og það sé mjög áhrifaríkt. Hann segir að því sé um náttúrulegt efni að ræða sem hafi áhrif á frumurnar í upphafi krabbameins. Því geti það haft áhrif á margar tegundir krabbameins, ef ekki allar, strax í upphafi. Hinsvegar hafa margir áhyggur af blæðingum í maga sem getur verið afleiðing mikillar neyslu aspiríns. Elwood segir að einn af hverjum þúsund sem taki inn aspirín þjást af blæðingum í maga á hverju ári. Hinsvegar megi minnka þær líkur með því að drekka mjólkurglas við inntöku aspiríns.
Mest lesið Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Selenskíj heimsótti Ísland og fundaði með forsætisráðherrum Innlent Vannærð og veik af áfengisneyslu eftir vetursetu í Evrópu Innlent Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Innlent Smitaðist fimm mánaða en lifir nú eðlilegu lífi Innlent Snorri sakar Hallgrím um ofureinfaldanir Innlent Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið Innlent „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ Innlent „Það var annað hvort þetta eða vændi“ Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri austurrísks bæjar skotinn til bana Jafnaðarmenn í Litháen unnu sigur Vara eindregið við mengun frá gashelluborðum Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn Vill hvorki gera meira né minna úr árásunum en ástæða er til Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Ætla ekki að viðurkenna úrslitin og kalla eftir mótmælum Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Flutningabíl ekið inn í þvögu í Tel Aviv Lokaði unnustann í ferðatösku þar til hann lést Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Sagður hafa stöðvað stuðningsyfirlýsingu Óttast umsátur og ofbeldi við kjörstaði Íranar segja skaðann „takmarkaðan“ eftir árásir næturinnar Ísrael gerir loftárás á Íran Víðfrægur rappari grunaður um að ráða launmorðingja Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni Enn allt í járnum skömmu fyrir kjördag Stýrivextir ná sögulegu hámarki í Rússlandi Óvinsæll Trudeau ætlar ekki að víkja Gagnrýnd fyrir að heiðra minningu fallinna fasista Musk sagður í reglulegum samskiptum við Pútín Springsteen studdi Harris og Trump ræðir við Joe Rogan Baráttan um Bandaríkin: „Hann veit hvað hann er að gera“ Neitar ekki liðsstyrk frá Norður-Kóreu Leggur til að Menendez bræðrunum verði sleppt á reynslulausn Gerðu loftárásir á Kúrda í Írak og Sýrlandi Einn látinn eftir að lest fór af sporinu í Noregi Sjá meira