Erlent

Býður marijúana fyrir Makkann

Starfsmaður auglýsingastofu í Bandaríkjunum hefur brugðið á óvenjulegt ráð til þess að hafa upp á Apple fartölvunni sinni sem rænt var á dögunum. Hann hefur boðið þeim sem getur veitt upplýsingar sem leitða til handtöku þjófsins tæp 30 grömm af úrvals maríjúana.

Hann hefur einnig birt á Youtube myndskeið sem sýnir þjófnaðinn með skýringatextum og hefur myndbandið vakið mikla athygli.

Það er hinsvegar spurning hvað laganna vörðum finnst um fundarlaunin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×