Íslenski boltinn

Umfjöllun: Þolinmæðisverk hjá Keflavík

Elvar Geir Magnússon skrifar
Willum Þór, þjálfari Keflavíkur, gat fagnað eftir leikinn í kvöld.
Willum Þór, þjálfari Keflavíkur, gat fagnað eftir leikinn í kvöld.

Keflvíkingar og Fylkismenn eru á toppi Pepsi-deildar karla eftir tvær fyrstu umferðirnar. Keflvíkingar skruppu yfir til Grindavíkur í kvöld og sóttu þrjú stig í leik sem bauð annars ekki upp á mikið.

Eina mark leiksins skoraði Jóhann Birnir Guðmundsson á 81. Mínútu. Leikurinn minnti um margt á síðustu viðureign þessara liða en þá vann Keflavík einnig 1-0 sigur með marki seint í leiknum.

Grindvíkingar voru án tveggja sinna bestu manna, varnarmannsins Auðuns Helgasonar og sóknarmannsins frá Gabon, Gilles Mbang Ondo. Þeirra var saknað í kvöld, þá sérstaklega Gilles en hann skoraði langflest mörk liðsins á undirbúningstímabilinu.

Lúkas Kostic stillti sínu liði upp með ansi varnarsinnuðum hætti og lét reyna á þolinmæði gestana. Þolinmæði þeirra brast hins vegar ekki og þeir fögnuðu sigri í leikslok.

Keflvíkingar sóttu meira í fyrri hálfleiknum en lítið vit var í flestum skottilraunum þeirra og markvörðurinn Óskar Pétursson þurfti ekki að hafa mikið fyrir hlutunum. Hann varði þó vel í eitt skipti þegar Magnús Þórir Matthíasson fékk gott færi á markteig.

Grindvíkingar voru líflegri í seinni hálfleiknum og áttu nokkrar hættulegar skyndisóknir. Eftir eina þeirra fékk Scott Ramsey mjög gott færi eftir stungusendingu Jóhanns Helgasonar en Ómar Jóhannsson varði vel. Þá fékk Jósef Kristinn dauðafæri en var of lengi að athafna sig og Magnús Þórir hljóp hann uppi.

Mark varamannsins Jóhanns skildi liðin að en hann skoraði eftir flotta rispu hjá Guðjóni Árna Antoníussyni. Við þetta virtust heimamenn leggja árar í bát og Keflvíkingar voru nær því að bæta við undir lokin en þeir að jafna.

Tveir sterkir sigrar hjá Keflvíkingum á erfiðum útivöllum í byrjun móts en Grindvíkingar eru hinsvegar án stiga. Þess má geta að 1.568 áhorfendur mættu á leikinn í kvöld og er það áhorfendamet á Grindavíkurvelli.

Þetta tap fór greinilega illa í marga Grindvíkinga, þar á meðal starfsfólk vallarins en öryggisverðir á vellinum reyndu að hindra blaðamann í að taka viðtöl eftir leik og gekk einn það langt að rífa harkalega í hann.

Grindavík - Keflavík 0-1

0-1 Jóhann B. Guðmundsson (81.)

Skot (á mark): 8-12 (3-6)

Varin skot: Óskar 4 - Ómar 3

Horn: 4-8

Aukaspyrnur fengnar: 10-18

Rangstöður: 4-4

Áhorfendur: 1.568

Dómari: Kristinn Jakobsson 7

Grindavík (5-4-1):

Óskar Pétursson 7

Alexander Magnússon 5

Marko Valdimar Stefánsson 6

Orri Freyr Hjaltalín 7 - Maður leiksins

Loic Mbang Ondo 6

Jósef Kristinn Jósefsson 6

Ray Anthony Jónsson 6

Jóhann Helgason 4

Matthías Örn Friðriksson 5

Óli Baldur Bjarnason 5

(61. Grétar Ólafur Hjartarson 6)

Scott Ramsey 6

(77. Sveinbjörn Jónasson -)

Keflavík (4-4-2):

Ómar Jóhannsson 6

Guðjón Árni Antoníusson 7

Haraldur Freyr Guðmundsson 6

Bjarni Hólm Aðalsteinsson 6

Alen Sutej 5

Magnús Þorsteinsson 3

(74. Jóhann B. Guðmundsson -)

Hólmar Örn Rúnarsson 7

Paul McShane 6

Magnús Þórir Matthíasson 5

Guðmundur Steinarsson 5

Hörður Sveinsson 4






Fleiri fréttir

Sjá meira


×