Innlent

Alvarlegt umferðarslys í Húnavatnssýslu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins. Mynd/ Vilhelm.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins. Mynd/ Vilhelm.
Alvarlegt umferðarslys varð á Norðurlandsvegi í Víðidal í Húnavatnssýslu á sjöunda tímanum í kvöld. Tveir eru slasaðir og er þyrla Landhelgisgæslunnar á leið norður vegna málsins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er vegurinn lokaður í báðar áttir og má búast við því að slík lokun vari í einhvern tíma. Lögreglan gefur ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×