Innlent

Ók ofan í skurð við Gljúfrastein

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bifreið fór út af veginum og ofan í skurð við Gljúfrastein á þriðja tímanum í dag. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, festist í honum við óhappið. Því var tækjabíll á vegum slökkviliðsins kallaður til þannig að hægt væri beita klippum til að ná manninum úr bílnum. Ekki er vitað hvort maðurinn hafi meiðst í óhappinu. Töluverð hálka er víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og er rétt að minna ökumenn að fara varlega í umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×