Innlent

Útskrifaður af spítala eftir árás

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Maðurinn var fluttur á slysadeild en útskrifaður þaðan skömmu seinna. Mynd/ GVA.
Maðurinn var fluttur á slysadeild en útskrifaður þaðan skömmu seinna. Mynd/ GVA.
Maðurinn sem varð fyrir árás fyrir utan skemmtistað í miðborginni í nótt hefur verið útskrifaður af spítalanum. Þrír karlmenn réðust á manninn þannig að hann féll í götuna. Þá var sparkað ítrekað í höfuð mannsins.

Samkvæmt tilkynningu sem lögreglan sendi frá sér í morgun voru árásarmennirnir handteknir og verða yfirheyrðir í dag.

Eins og fram kom á Vísi í morgun var nóttin erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og voru fangageymslur fullar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×