Innlent

Tekinn með lítra af amfetamínvökva

Tæplega fertugur karlmaður er nú fyrir héraðsdómi, ákærður fyrir að hafa reynt að smygla til landsins rúmlega einum lítra af amfetamínvökva. Úr því magni hefði mátt framleiða rúmlega átta kíló af amfetamíni, sem ætluð voru til söludreifingar í ágóðaskyni hér.

Maðurinn er pólskur ríkisborgari. Hann flutti efnin með flugi frá Póllandi hingað til lands. Tollverðir fundu þau í flösku í farangri hans við komu hans til Keflavíkurflugvallar í lok ágúst á þessu ári.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×