Innlent

Tafarlaus rýming vegna jökulhlaups

Vegna upplýsinga um að stórt vatnsflóð sé að koma niður Gígjökul þá verða áhrifasvæði Eyjafjallajökuls rýmd strax.

Flóð er um eina klukkustund niður í byggð. Tilkynning er farin til Neyðarlínu og boðun til íbúa er hafin.

Íbúar eru beðnir að rýma strax upp í hlíðar og á örugg svæði. Vatn flæðið yfir varnargarða við Þórólfssfell í innanverðri Fljótshlíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×