Innlent

Alþjóðlega handtökuskipun á stofnanda Wikileaks

Julian Assange, stofnandi Wikileaks síðunnar.
Julian Assange, stofnandi Wikileaks síðunnar.
Sænska lögreglan hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Julian Assange, stofnanda Wikileaks síðunnar. Assange sakaður um nauðgun í Enköping og kynferðisbrot í þremur tilvikum í Stokkhólmi.

Assange var gert að mæta fyrir dómara á fimmtudag en lét ekki sjá sig. Sænska lögreglan telur að Assange sé farinn í felur en síðast sást til hans í Lundúnum að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×