Erlent

Tugir fanga fórust í eldsvoða

Að minnsta kosti 81 fangi fórst í miklum eldsvoða í fangelsi í höfuðborg Chile Santíagó í morgun. Hundruðir fanga voru fluttur úr fangelsinu þegar eldurinn blossaði upp en ekki tókst að bjarga öllum. Að minnsta kosti fjórtán eru lífshættulega slasaðir.

Á fréttavef BBC kemur fram að yfirvöld telja að eldurinn hafi blossað upp þegar tvö gengi innan fangelsisveggjanna fóru að berjast. Sumir fanganna kveiktu þá í dýnum sínum en fljótlega misstu þeir tökin á eldinum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×