Innlent

Lárus hafi verið leppur Jóns Ásgeirs

Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, vildi ekki tjá sig við fjölmiðla þegar hann kom til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í dag. Slitastjórn Glitnis telur að Lárus hafi verið leppur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og hafi tekið við beinum skipunum frá honum um hvernig ætti að reka bankann.

Lárus var yfirheyrður í 11 klukkustundir í gær vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á málefnum bankans. Lárus kom aftur til skýrslutöku í hádeginu í dag og vildi ekki tjá sig við fjölmiðla.

Í gögnum slitastjórnar Glitnis vegna skaðabótamáls á hendur fyrrverandi stjórnendum og eigendum bankans fyrir dómstóli í New York er fjallað um stöðu Lárusar Welding innan Glitnis. Því er haldið fram að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi stýrt bankastjórninni og séð til þess að hún réði Lárus Welding sem bankastjóra í stað Bjarna Ármannssonar. Lárus hafi verið of reynslulítill til að takast á við starfið. Þá er því haldið fram að sem formaður lánanefndar Glitnis hafi Lárus verið í lykilstöðu til að veita lán til aðila sem tengdust eigendum bankans.

Lárusi er þannig lýst sem nokkurs konar leppi Jóns Ásgeirs, og sagt að hann hafi tekið við beinum skipunum frá honum um hvernig ætti að reka bankann. Lárus hafi meðal annars kvartað undan því í tölvupósti við Jón Ásgeir að hann kæmi fram við hann eins og útibússtjóra en ekki bankastjóra.

Rannsókn sérstaks saksóknara á Glitni er meðal annars byggð á tilkynningum frá skilanefnd og slitastjórn bankans.




Tengdar fréttir

Milljarðakaup á verðlausu skuldabréfi ein ástæða húsleita

Gjaldeyrissjóður á vegum Glitnis keypti verðlaust skuldabréf af Saga Capital á rúman milljarð eftir bankahrun. Þetta er meðal þess sem liggur til grundvallar húsleitum og yfirheyrslum Sérstaks saksóknara í allan gærdag.

Sérstakur saksóknari: Húsleitir bera árangur

„Heilt yfir þá er ekki mikið sem hefur upp á vantað í húsleitunum," sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í morgunútvarpi Rásar 2 þar sem hann var spurður hvort húsleitir árum eftir ætluð brot skiluðu árangri.

Enn verið að yfirheyra - enginn gistir fangageymslur

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að yfirheyrslum vegna rannsóknar embættisins á Glitnismálinu sé ekki enn lokið. Hann á von á því að yfirheyrslum verði lokið um miðnætti.

Jón Ásgeir yfirheyrður „kannski seinna"

Ekki hafa verið teknar skýrslur af neinum stórlöxum í Glitnis-málinu, aðeins starfsmönnum bankans. Fyrrverandi stjórnarformenn hafa ekki verið yfirheyrðir. Jón Ásgeir hefur ekki verið yfirheyrður, bauð fram aðstoð sína við rannsóknina í gær en var neitað en fékk þau svör að hann yrði kannski yfirheyrður.

Húsleitir hjá Jóni Ásgeiri, Lárusi og Pálma

Húsleitir voru framkvæmdar á skrifstofu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á 101 Hóteli, skrifstofu Pálma Haraldssonar og heimili Lárusar Welding í gríðarlega umfangsmikilli rannsókn sérstaks saksóknara í dag. Rannsóknin tengist lánveitingum Glitnis og nemur fjárhæð viðskiptanna um sjötíu milljörðum króna.

Lárus Welding yfirheyrður

Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis banka, var kallaður til yfirheyrslu hjá embætti sérstaks saksóknara í morgun. Þar hefur hann setið í allan dag og yfirheyrslur standa enn.

Skýrslutökum yfir Lárusi lokið

Yfirheyrslum yfir Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, er lokið. Yfirheyrslurnar hófust í morgun en þeim lauk skömmu fyrir klukann átta í kvöld. Lárus svaraði ekki spurningum fjölmiðlamanna þegar hann kom út frá skrifstofum sérstaks saksóknara ásamt lögmanni sínum.

Yfirheyrslur haldið áfram hjá sérstökum saksóknara

Yfirheyrslur hafa haldið áfram í morgun vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á lánveitingum Glitnis fyrir hrun. Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri, var yfirheyrður í 11 klukkustundir í gær.

Segja mál sjömenninganna eiga heima á Íslandi

Ný gögn sem slitastjórn Glitnis hefur lagt fram í New York í skaðabótamálinu gegn sjömenningunum sanna ekkert og sýna að málið á ekki heima þar heldur fyrir íslenskum dómstólum, að mati lögmanna stefndu. Þá telja þeir áhuga íslensku þjóðarinnar á málinu styðja þá kröfu.

Sérstakur saksóknari: Vinnan heldur áfram

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vill ekki upplýsa hvort yfirheyrslum yfir Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, verði haldið áfram á morgun. Framhaldið verði að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×