Skerðing kennslu er síðasta úrræðið 22. nóvember 2010 06:00 Katrín Jakobsdóttir
Unnið er að því að greina kostnað við grunnskólahald, en hann er nokkuð hærri á Íslandi en í viðmiðunarlöndunum í OECD. Er reiknað með að niðurstöður liggi fyrir í næstu viku. Sveitarfélögin, sem reka grunnskólana, standa frammi fyrir átta milljarða tekjusamdrætti á næsta ári. Vilja þau spara í skólastarfinu, en helmingur gjalda þeirra rennur til þess. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir farið verða yfir málið þegar greiningin sé afstaðin. Fækkun kennslustunda er meðal sparnaðarhugmynda sveitarfélaganna. Katrín er ekki hrifin af þeirri leið. „Ég hef litið á það sem síðasta úrræði að skerða kennslutíma barna," segir hún. Spjótin standa einnig á framhaldsskólunum. Spara þarf í rekstri þeirra um fimm prósent. Kennarar og stúdentar hafa mótmælt áformunum og sagt að þegar hafi verið sparað svo mikið að komið sé að þolmörkum. Katrín segir framhaldsskólana ekki hafa verið ofalda í gegnum árin. „Það er ekki af miklu að taka enda búið að ganga að öllu sem hugsanlega er hægt að tala um sem viðbót." Niðurskurðurinn á þessu ári nam einnig fimm prósentum. Katrín segir að hans sjái merki í skólastarfinu. Kennsluframboð sé minna og yfir- og aukavinna kennara hafi minnkað. Fjárlaganefnd og menntamálanefnd hafa verið kynnt áhrif niðurskurðarins á skólastarfið. - bþs
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Innlent Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Innlent Dómi í máli Alberts áfrýjað Innlent Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Innlent Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Innlent Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Innlent Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Innlent Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Innlent Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Erlent Fleiri fréttir Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til Kína næsta árið Steinþór hafi verið að berjast fyrir lífi sínu Dómi í máli Alberts áfrýjað „Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“ Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Áfram í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Grindavík á barmi gjaldþrots og læknar á leið í verkfall Vill vita hvort RÚV hafi einhvern tíma beðist afsökunar Segist aldrei geta litið Sigurð Inga sömu augum Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Flokkshollusta á undanhaldi Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Máttu ekki selja eldaðan mat Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi Sjá meira