Innlent

Stórlaxar í Glitnismáli mæta til yfirheyrslu - engin lög um skuggastjórnun

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka.
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka.

Ekki er útilokað að fyrrverandi hluthafar Glitnis og æðstu stjórnendur verði kallaðir til yfirheyrslu á næstunni í tengslum við rannsókn Glitnismálsins. Ekki hefur verið krafist gæsluvarðhalds yfir neinum í tengslum við rannsóknina.

Tíu voru yfirheyrðir í tengslum við rannsóknina í gær. Meðal þeirra eru Bjarni Jóhannsson, fyrrverandi viðskiptastjóri hjá Glitni, Guðný Sigurðardóttir, sem var á lánasviði Glitnis og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri Saga Fjárfestingarbanka. Fleiri fyrrverandi starfsmenn Glitnis voru yfirheyrðir og starfsmenn Saga. Einhverjir munu hafa verið handteknir í tengslum við rannsóknina, en ekki hefur fengist upp gefið hversu margir.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði í samtali við fréttastofu í morgun ekki hefði verið krafist gæsluvarðhalds yfir neinum í tengslum við rannsóknina, en embættið getur haldið mönnum í allt að sólarhring án þess að krefjast gæsluvarðhalds. Engir eru í haldi að sögn Ólafs Þórs.

Samkvæmt heimildum fréttastofu verður Lárus Welding fyrrverandi forstjóri Glitnis yfirheyrður, en Fréttablaðið greinir frá því að hann muni koma frá Lundúnum á morgun til að mæta til yfirheyrslu. Blaðið greinir jafnframt frá því að stórlaxarnir verði yfirheyrðir í síðari stigum.

Þrátt fyrir að þau mál sem hafi verið til rannsóknar hafi hugsanlega verið teiknuð upp af einhverjum allt öðrum en stjórnendum Glitnis liggur ábyrgðin vegna þeirra hjá stjórnendum hans, lögum samkvæmt. Fréttastofa spurði sérstakan saksóknara út í þetta atriði gær.

Samningarnir teiknaðir upp af einhverjum allt öðrum?

Málin tengjast lánveitingum Glitnis banka. Ábyrgðin lögum samkvæmt er þá æðsta ákvörðunarvald í viðkomandi hlutafélagi milli aðalfunda, sem er þá framkvæmdastjóri og æðstu stjórnendur, ekki satt? „Þetta er það sem rannsóknin þarf að leiða í ljós. Það hver ber ábyrgð og hvað nákvæmlega gerðist. Þetta er eitt af þeim atriðum sem að rannsókninni er ætlað að upplýsa."

Eruð þið, sem rannsakið málin, meðvituð um það að hugsanlega hafi allir þessir samningar verið teiknaðir upp af einhverjum allt öðrum en voru framkvæmdaraðilar þegar viðskiptin áttu sér stað, þó þeir beri á endanum ábyrgð? „Þetta eru atriði sem rannsóknin verður að leiða í ljós og er allt of snemmt að fullyrða um."

Hefurðu skoðun á því hvort það séu meinbugir á íslenskri refsilöggjöf með teknu tilliti til skuggastjórnunar? „Samhliða þessum rannsóknum er hugað að því hvernig lagaramminn er samansettur og hvort það séu tilefni til að gera tillögur um lagabreytingar í ljósi þeirrar reynslu sem komin er. Við söfnum þeim upplýsingum saman og komum þeim á framfæri þegar tími gefst," sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.


Tengdar fréttir

Þorvaldur Lúðvík yfirheyrður

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga fjárfestingarbanka, er einn þeirra sem hefur verið yfirheyrður í morgun í Glitnismálinu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Grunur um hlutdeild Saga í meintum brotum Glitnis

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Fjárfestingarbanka, hefur réttarstöðu sakbornings í Glitnismálinu, en meðal þess sem liggur til grundvallar húsleitunum í gær er grunur um hlutdeild fyrirtækisins í meintum brotum Glitnis banka.

Handtökurnar tengjast Stím málinu

Sérstakur saksóknari hefur handtekið menn í tengslum við rannsóknina á Glitnismálinu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Sérstakur rannsakar lán til Baugs, FS-38 og Landic auk Stím

Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á lánveitingum Glitnis og viðskiptum með hlutabréf fóru fram húsleitir á ýmsum stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Nánar tiltekið eru til rannsóknar eftirgreind mál:

Saga Fjárfestingarbanki: Rannsóknin tengist ekki bankanum

Saga Fjárfestingarbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna rannsóknar Sérstaks saksóknara, en húsleit var gerð á skrifstofum bankans á Akureyri og í Reykjavík. Í yfirlýsingunni segir að bankinn hafi frá upphafi liðsinnt saksóknara og hans fólki við rannsóknina og að Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari hafi staðfest að rannsóknin beinist ekki að Saga Fjárfestingarbanka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×