Innlent

BSRB vill koma á fót leigukerfi að danskri fyrirmynd

BSRB leggur til við stjórnvöld, að komið verði á fót nýju leigukerfi hér á landi að danskir fyrirmynd.

Samkvæmt tillögunum myndi ríkið yfirtaka tóm fjölbýlishús og breyta þeim í leiguíbúðir á viðráðanlegu verði. Sérstök verðlagsnefnd gætti þess að leiga verði ekki hærri en sem nemur kostnaði við húsnæðið og eðlilegt viðhald.

Í danska kerfinu geta leigjendur búið æfilangt í svona húsnæði, ef þeir óska þess. Tillögurnar hafa verið sendar viðkomandi nefndum Alþingis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×