Innlent

Lækkun skulda getur oltið á þúsundköllum

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar

Fáeinir þúsundkallar í tekjum geta skilið á milli þeirra sem fá milljónir felldar niður af húsnæðisskuldum sínum - og hinna sem ekkert fá, samkvæmt aðgerðum sem ríkisstjórnin og fjármálakerfið kynnti í dag.

Segja má að stærsta aðgerðin sé samkomulag um að bjóða öllum yfirveðsettum heimilum að færa lán þeirra niður í 110% af fasteignamati eignar. Með ákveðnum girðingum þó.

Tökum dæmi af hinni sígildu kjarnafjölskyldu. Hjónin tóku tæplega 90% lán snemma árs 2005, upp á 20,5 milljónir króna og keyptu fjögurra herbergja íbúð í Hlíðunum á 23 milljónir kr.

Lánið er í skilum, en með greiðslujöfnun, og stendur í dag í 29,3 milljónum króna. Eftir að hafa greitt samviskusamlega af láninu í tæplega sex ár, er lánið því nærri 9 milljónum króna hærra en þegar hjónin tóku það, vegna verðbólgu.

Samkvæmt upplýsingum hjá Fasteignamati ríkisins má ætla að fasteignamat svona íbúðar verði um 23 milljónir króna um áramót.

Lækkun láns niður í 110% af fasteignamati myndi þá þýða að lánið lækkaði niður í 25,3 milljónir króna.

Slík niðurfelling er þó ekki sjálfgefin - hún er háð því að mánaðarlegar afborganir hjónanna séu yfir 20% af heildartekjum þeirra.

Án greiðslujöfnunar væru þau, samkvæmt útreikningum banka, að borga 134 þúsund krónur á mánuði af láninu.

Hjónin eru nýskriðin yfir þrítugt, meðaltekjur fólks á þeim aldri eru 656 þúsund kr. á mánuði árið 2009 samkvæmt gögnum Hagstofunnar. 20% af því eru 131 þúsund krónur - og þar sem þau greiða 134 þús. kr. af láni sínu á mánuði, þá eru þau rétt yfir mörkum og fá því fjórar milljónir króna felldar niður af sínu láni.

Þarna má þó litlu muna, þessi hjón eru 3000 krónum réttu megin við strikið. Hafi þau hins vegar reynt að vinna meir, taka eina aukavakt eða svo, til að bæta sér upp dýrtíðina í landinu er hætt við að þessi hjón hröpuðu niður fyrir línuna og fengju enga niðurfellingu skulda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×