Handrit.is hlýtur Hagnýtingarverðlaun HÍ 19. nóvember 2010 17:20 Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ásamt verðlaunahöfum og Rögnvaldi Ólafssyni, formanni dómnefndar.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, afhenti í dag Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands en verðlaunin voru nú afhent í tólfta sinn. Að þessu sinni bárust 13 hugmyndir af ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands.Hægt að leika sér handritin Fyrstu verðlaun hlaut tillaga Sigurgeirs Steingrímssonar vísindamanns á Árnastofnun, Arnar Hrafnkelssonar, forstöðumanns handritadeildar Landsbókasafns og Matthew Driscoll forstöðumanns Árnastofnunar í Kaupmannahöfn. Tillagan kallast: „handrit.is - Rannsóknargagnagrunnur og samskrá um íslensk og norræn handrit." Verkefnið er á sviði norrænna fræða og er nútíma gagnagrunnur um íslensk og norræn handrit. Beitt er nútímatækni á þann veg að hægt er að tengja saman ólíkar upplýsingar á nýstárlegan hátt. Hægt er að taka hvert handrit og tengja það við upplýsingar af ólíkum toga m.a. staðsetningar og aðrar landfræðilegar og fornleifafræðilegar upplýsingar. Auk þess getur hver og einn notað gagnagrunninn til þess að leika sér með handritin, bæta við eigin texta, athugasemdum, nýta myndskreytingar og raða ólíkum atriðum saman að vild. Gagnagrunnurinn verður hvort tveggja tæki til fræðilegra athugana og persónulegt verkfæri til eigin sköpunar. Með lausninni eru handritin gerð aðgengileg öllum. Hægt að ná lýsingu yfir stór svæði Verkefnið „Ný tækni til flúorljómunarrannsókna á lifandi frumum" hlaut önnur verðlaun. Tæknin byggir á notkun örflögu sem er með eiginleikana að ljósörva einungis þunnt lag nálægt yfirborði flögunnar (100-2000 nm). Frumum, með flúrljómandi sameindum, er komið fyrir á örflögunni og ljósörvun á sér eingöngu stað í þeim hluta frumunnar sem næst er yfirborðinu. Með þessum hætti má bæði auka greinigæði mynda og skoða einstakar flúorljómandi agnir innan frumunnar sem veita m.a. upplýsingar um efnaflutning í eða við frumuhimnu. Með örflögunum má ná fram jafnri lýsingu yfir stór svæði, notast má við margar bylgjulengdir til örvunar og hægt er að hanna flögurnar með mismunandi örvunardýpt sem nær frá um 100 nm til 2000 nm. Björn Agnarsson doktorsnemi við Háskóla Íslands er höfundur tillögunnar ásamt Kristjáni Leóssyni eðlisfræðingi á Raunvísindastofnun.Frasar.net - mætir þörfum notendenda umfram orðabækur Þriðju verðlaun hlaut hugmynd Auðar Hauksdóttur dósents í dönsku við Háskóla Íslands „frasar.net. Danskt - íslenskt máltæki." Hugmyndin er að mæta þörfum notenda langt umfram hefðbundnar orðabækur. Í fyrsta lagi hefur frasar.net að geyma mun fleiri dönsk orðtök með skýringum á dönsku og íslensku og notkunardæmum en finna má í þeim dansk-íslenskum og íslensk-dönskum tvímála orðabókum sem nú eru fáanlegar. Í öðru lagi gefur vefsvæðið kost á að finna sambærileg orðtök í málunum þó að kjarnaorðin séu ekki þau sömu. Þá fylgja lausninni upplýsingar til notenda, þegar líkindi eða ólíkindi með íslensku og dönsku geta valdið misskilningi eða leitt til misvísandi eða rangrar málnotkunar. Með tillögunni hefur tekist að afmarka mörg sambærileg orðtakapör, t.d. íslenska orðtakið Fara yfir lækinn eftir vatni/að sækja vatn og danska orðtakið Gå over åen efter vand, frá toppi til táar/fra top til tå, en hefðbundnar orðabækur draga ekki fram slík líkindi. Þá hafa lík orðtakapör verið borin saman og skráðar leiðbeiningar til notenda þegar hætta er á misskilningi eða villum, t.d. þegar yfirborðsmyndin er ólík en merking mjög lík eða hin sama, sbr. gera úlfalda úr mýflugu/gøre myg til en elefant, e-ð fer í hundana/ngt. går i fisk.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Innlent Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Innlent Dómi í máli Alberts áfrýjað Innlent Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Innlent Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Innlent Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Innlent Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Innlent Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Innlent Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Erlent Fleiri fréttir Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til Kína næsta árið Steinþór hafi verið að berjast fyrir lífi sínu Dómi í máli Alberts áfrýjað „Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“ Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Áfram í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Grindavík á barmi gjaldþrots og læknar á leið í verkfall Vill vita hvort RÚV hafi einhvern tíma beðist afsökunar Segist aldrei geta litið Sigurð Inga sömu augum Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Flokkshollusta á undanhaldi Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Máttu ekki selja eldaðan mat Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi Sjá meira