Innlent

Hveragerðisbær greiðir nemendum fyrir að hreinsa rusl

Nemendurnir safna sér fyrir skólaferð með því að hreinsa rusl.
Nemendurnir safna sér fyrir skólaferð með því að hreinsa rusl. Mynd úr safni
Hveragerðisbær hefur gert samning við nemendur í 7. bekk Grunnskólans í Hveragerði um að nemendur taki að sér að hreinsa rusl í Hveragerðisbæ. Fyrir vinnu nemenda greiðir bæjarfélagið fasta upphæð mánaðarlega sem rennur óskipt í ferðasjóð nemendanna sem stefna á skemmtiferð á Úlfljótsvatn.

Þetta kemur fram í Dagskránni, fréttabréfi Suðurlands.

Starf nemendanna felst meðal annars í að hreinsa rusl mánaðarlega af skólalóð, í skógrækt og við allar aðalgögur, auk þess sem hreinsað er úr trjábeðum og á öllum grænum svæðum bæjarins. Bærinn greiðir 32 þúsund krónur fyrir hvert skipti, eða 288 þúsund krónur á níu mánaða tímabili.

„Ungir Hvergerðingar læra að sé rusli hent þá þarf alltaf einhver að sækja það síðar," segir Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstóri í samtali við Dagskrána. Sambærilegur samningur hefur verið gerður við 7. bekkinga í Hveragerði í fjölda ára.

Í Dagskránni kemur ennfremur fram að bærinn hefur líka gert samning við 10. bekkinga sem gengur út á að nemendur aðstoða í mötuneyti skólans, annast gæslu í frímínútum og í hádegi, og aðstoða við gæslu á skólaskemmtunum elsta stigs.

Hveragerðisbær greiðir 52.500 krónur á mánuði fyrir þetta, eða 472 þúsund fyrir níu mánaða tímabil. Upphæðin rennur óskipt í ferðasjóð nemendanna sem hyggjast fara í námsferð til London í lok skólaárs. Einnig er hefð fyrir samningi sem þessum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×