Erlent

Vilhjálmur og Kate fá hjónabandsráðgjöf

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vilhjálmur Bretaprins gengur að eiga sína heittelskuðu Kate Middleton á næsta ári. Mynd/ afp.
Vilhjálmur Bretaprins gengur að eiga sína heittelskuðu Kate Middleton á næsta ári. Mynd/ afp.
Þrátt fyrir að fjórir mánuðir séu þangað til að Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton munu játast hvort öðru, hafa þau nú þegar þáð boð um hjónabandsráðgjöf.

Dagblaðið The London Evening Standard segir að erkibiskupinn af Canterbury og biskupinn í Lundúnum muni gefa parinu ráð varðandi hjónabandið.

Talskona konungshirðarinnar staðfestir að parið hafi þegið boð um nokkurskonar kennslu frá biskupunum tveimur. Hins vegar verður ekki upplýst í smáatriðum hvert efni kennslunnar verður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×