Innlent

Gríðarleg umferðarteppa á Miklubrautinni

Gríðarleg umferðarteppa var í Ártúnsbrekkunni og Miklubraut nú í morgun og varð til þess að fjöldi manns komst of seint á áfangastað.

Vísir ræddi við ökumann sem lagði af stað frá heimili sínu í Grafarvoginum um 25 mínútur í níu en komst ekki til vinnu fyrr en tæpri klukkustund síðar.

Samkvæmt umferðadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þá var afrein frá Miklubraut inn á Skeiðarvog lokuð vegna framkvæmda. Þar væri skýringuna á umferðarteppunni að finna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×