Ísland er eins og tilraunastofa Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. ágúst 2011 13:31 Eiríkur Bergmann Einarsson vinnur að mikilli rannsókn um aðdraganda og eftirmála hrunsins.
Ísland er eins og tilraunastofa fyrir afdrif vestrænna hagkerfa við fjármálakreppu, segir Eiríkur Bergmann Einarsson, doktor í stjórnmálafræði. Eiríkur hefur ásamt fræðimönnunum Claes Belfrage og David Berry unnið í þrjú ár að rannsókn á aðdraganda Íslandshrunsins og hugmyndina um endurreisn Íslands. Rannsóknin verður birt í hinu virta fræðiriti Economy and Society og er hún talin mikilvægur þáttur í stóru alþjóðlegu rannsóknarneti í menningarlegri stjórnmálahagfræði. Eiríkur Bergmann segir að hrunið á Íslandi megi rekja til hugmyndafræði afregluvæðingar sem hafi leitt af sér veikar stoðir. „Þetta er auðvitað vandi sem ríki alls staðar í kringum okkur eiga við að etja, en birtist með miklu skýrari hætti," segir Eiríkur Bergmann. Hann segir það alþekkt í stjórnmálafræði að nota dæmi sem gengur lengra en flest önnur dæmi til þess að skýra fyrirbæri. Þess vegna veki Ísland áhuga fræðimanna og fjölmiðla. Eiríkur Bergmann segir líka að eftir hrun hafi þróast ný gagnrýnin skipan sem meðal annars hafi verið tjáð í búsáhaldarbyltingu þar sem stjórnmálamenn og lykilstofnanir voru sakaðar um að hafa ýtt undir uppgang, bólumyndun og hrun efnahagskerfisins. Gagnrýnin beindist einnig að útlöndum eins og sjá mátti í Icesave-deilunni. Í hinni nýju gagnrýnu skipan hafi vantrú á kapítalisku fjármálakerfi grafið um sig og vaxandi efasemdir séu uppi varðandi réttlætingu fyrir endurreisn þess kerfis. Slíkt sé ekki óþekkt í sögunni en í yfirstandandi baráttu um hugmyndina um endurreisn Íslands felst einstak tækifæri til að rannsaka möguleika hins kapítalíska kerfis á að réttlæta sjálft sig eftir slíkt efnahagshrun. Eiríkur Bergmann og samstarfsmenn hans munu kynna áfanganiðurstöður rannsóknar sinnar á alþjóðlegri ráðstefnu stjórnmálafræðinga, ECPR, í Reykjavík á morgun klukkan eitt.
Mest lesið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Innlent Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Innlent Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Innlent „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Innlent Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Innlent Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Innlent Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Erlent Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Innlent Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Innlent Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Hringvegurinn opinn á ný Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum RAX flaug yfir jökulhlaupssvæðið Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Sækja slasaðan göngumann í Kerlingarfjöll Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið Hringvegurinn líklega lokaður til kvölds „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Jökulhlaup, deilur um grunnskólamál og sundkappi Vegagerðin og deilur um menntakerfið Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Mótmæla brottvísun Venesúelamanna við Hallgrímskirkju Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Gæti orðið ófært í Þórsmörk Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Sjá meira