Níu ára drekka vikulega 2,5 lítra af gosi og sætum drykkjum 31. janúar 2011 10:08 15 ára unglingar drekka tæpa fjóra lítra af gosi og sætum drykkjum í hverri viku Mynd úr safni
Fyrsta vikan í febrúar ár hvert er helguð tannvernd og í ár er áhersla lögð á glerungseyðingu og hvernig stemma megi stigu við henni. Af því tilefni hefur Lýðheilsustöð gefið út veggspjaldið „Þitt er valið" þar sem lýst er á myndrænan hátt innihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á markaðnum og áhrifum innihaldsins á tannheilsu. Einnig hefur verið gefið út fræðslumyndband um umhirðu tanna barna, jafnt ungra sem þeirra eldri, og það talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Nýtt fræðsluefni er svo gjarnan gert fyrir leikskólabörn og yngstu börnin í grunnskóla í tannverndarvikunni og hefur það verið sent til allra leikskóla á landinu. Eitt af hlutverkum Lýðheilsustöðvar er að fræða og veita fólki upplýsingar um það sem hefur áhrif á heilsu. Í tannverndarvikunni í ár var ákveðið að beina sjónunum fólks að innihaldi drykkjarvara og áhrifum þess á glerungseyðingu - ekki síst hjá börnum og ungmennum en unglingar drekka til dæmis mjög mikið af gosdrykkjum.Veggspjaldið. Smellið á myndina til að stækka hanaSamkvæmt könnun RÍN drekka 9 ára börn að meðaltali tæplega 2,5 lítrar á viku af gosdrykkjum og sætum svaladrykkjum og 15 ára unglingar tæplega 4 lítrar á viku. Upplýsingarnar á veggspjaldinu eru settar fram á myndrænan hátt þannig að sem flestir skilji þær, jafnvel þeir sem ekki kunna íslensku til fullnustu, sem og til að hjálpa fólki að muna hvað er í hverjum drykk þegar kemur að því að velja sér drykkjarvöru.Börn innflytjenda í meiri hættu Komið hefur í ljós að tannheilsa barna innflytjenda er oft verri en annarra barna á Íslandi og því hefur fræðsluefnið verið talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Auðvelt er að nálgast efnið því hægt er að horfa á það í gegnum vefsíðu Lýðheilsustöðvar auk þess sem hægt er að panta DVD-disk með efninu á íslensku og ensku. Upplýsingum um efnið hefur verið miðlað til allra leik- og grunnskóla, heilsugæslustöðva, tannlæknastofa og annarra staða sem að gagni kunna að koma og viðkomandi beðnir að vekja athygli foreldra á því.
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Innlent Fleiri fréttir Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Sjá meira