Innlent

Níu ára drekka vikulega 2,5 lítra af gosi og sætum drykkjum

15 ára unglingar drekka tæpa fjóra lítra af gosi og sætum drykkjum í hverri viku
15 ára unglingar drekka tæpa fjóra lítra af gosi og sætum drykkjum í hverri viku Mynd úr safni
Fyrsta vikan í febrúar ár hvert er helguð tannvernd og í ár er áhersla lögð á glerungseyðingu og hvernig stemma megi stigu við henni. Af því tilefni hefur Lýðheilsustöð gefið út veggspjaldið „Þitt er valið" þar sem lýst er á myndrænan hátt innihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á markaðnum og áhrifum innihaldsins á tannheilsu.

Einnig hefur verið gefið út fræðslumyndband um umhirðu tanna barna, jafnt ungra sem þeirra eldri, og það talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Nýtt fræðsluefni er svo gjarnan gert fyrir leikskólabörn og yngstu börnin í grunnskóla í tannverndarvikunni og hefur það verið sent til allra leikskóla á landinu.

Eitt af hlutverkum Lýðheilsustöðvar er að fræða og veita fólki upplýsingar um það sem hefur áhrif á heilsu. Í tannverndarvikunni í ár var ákveðið að beina sjónunum fólks að innihaldi drykkjarvara og áhrifum þess á glerungseyðingu - ekki síst hjá börnum og ungmennum en unglingar drekka til dæmis mjög mikið af gosdrykkjum.

Veggspjaldið. Smellið á myndina til að stækka hana
Samkvæmt könnun RÍN drekka 9 ára börn að meðaltali tæplega 2,5 lítrar á viku af gosdrykkjum og sætum svaladrykkjum og 15 ára unglingar tæplega 4 lítrar á viku. Upplýsingarnar á veggspjaldinu eru settar fram á myndrænan hátt þannig að sem flestir skilji þær, jafnvel þeir sem ekki kunna íslensku til fullnustu, sem og til að hjálpa fólki að muna hvað er í hverjum drykk þegar kemur að því að velja sér drykkjarvöru.

Börn innflytjenda í meiri hættu

Komið hefur í ljós að tannheilsa barna innflytjenda er oft verri en annarra barna á Íslandi og því hefur fræðsluefnið verið talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Auðvelt er að nálgast efnið því hægt er að horfa á það í gegnum vefsíðu Lýðheilsustöðvar auk þess sem hægt er að panta DVD-disk með efninu á íslensku og ensku. Upplýsingum um efnið hefur verið miðlað til allra leik- og grunnskóla, heilsugæslustöðva, tannlæknastofa og annarra staða sem að gagni kunna að koma og viðkomandi beðnir að vekja athygli foreldra á því.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×