Innlent

Enn ein tilkynningin: Reyndi að lokka stúlku upp í bíl

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst aftur tilkynning um mann sem reyndi að lokka stúlku upp í bíl til sín. Atvikið á að hafa átt sér stað í Skipasundi nærri Langholtsskóla.

Skólastjóri Langholtsskóla hefur sent foreldrum bréf um tilvikið. Þetta er enn ein tilkynningin sem berst til lögreglunnar um meinta barnaníðinga sem eiga að hafa reynt að lokka börn upp í bíl til sín með ýmsum leiðum. Síðast var tilkynnt um slíkt í Kópavogi í gær.

Stjórn Heimilis og skóla vill árétta fyrir foreldrum að leggja sig fram við að fræða börnin sín á hreinskilinn hátt um þær hættur sem geta falist í samskiptum sínum við ókunnuga en án þess þó að hræða þau.

Allar tilkynningarnar eiga það sameiginlegt að börnin hafa ekki getað gefið greinagóða lýsingu á bifreiðunum né mönnunum sem eiga að hafa reynt að lokka börnin upp í bílana. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×