Innlent

Fjögur prósent hafa aldrei notað netið en 93 prósent nota það daglega

Út er komið hefti í efnisflokknum Upplýsingatækni þar sem birtar eru niðurstöður úr níundu rannsókn Hagstofunnar á notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og neti.

Niðurstöður úr rannsókn Hagstofunnar í efnisflokknum Upplýsingatækni sýna að nettenging er til staðar á 93% íslenskra heimila. Árleg fjölgun nettengdra heimila hefur verið að meðaltali 2% síðustu fimm ár, en fjölgunin er þó minni á milli áranna 2010 og 2011 en á fyrri árum.

Í rannsókninni kemur fram að ríflega 4% landsmanna á aldrinum 16-74 ára hafa aldrei notað netið en 93% netnotenda nota netið daglega. „Aukning hefur orðið á notkun Íslendinga á samskiptasíðum, úr 70% netnotenda árið 2010 í 76% nú. Ríflega 40% hafa lesið eða skrifað skoðanir á netinu um stjórnmálaleg eða samfélagsleg málefni og rúmlega einn þriðji hluti netnotenda hefur reynt að hafa áhrif á samfélagslega umræðu, t.d. með þátttöku í netkosningu eða undirskriftalistum á netinu. Ríflega helmingur netnotenda á aldrinum 16-74 ára höfðu verslað á netinu þegar miðað var við ár fram að rannsókn. Algengast var að keypt hefði verið áskrift að fjarskiptaþjónustu, aðgöngumiðar á viðburði, farmiðar og önnur ferðatengd þjónusta,“ segir í tilkynningu frá Hagstofunni.

Þriðjungur allra sem hafa notað tölvu hafa uppfært eða sett upp nýtt stýrikerfi í tölvum sínum. Tæp 62% telja tölvu- og netkunnáttu sína vera nægilega ef þeir myndu leita að nýju starfi eða að skipta um starf innan árs. Rúm 57% telja að tölvu- og netkunnátta sín sé nægileg til að vernda tölvu sína fyrir vírusum og öðrum tölvuógnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×