Innlent

Óþekk heimasæta og smávægilegt óhapp

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar.
Barn hljóp í veg fyrir bifreið á Hraunvegi við Kirkjugerði í Vestmanneyjum í  síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni lenti annað framhjól bifreiðarinnar á hægri fæti barnsins. Barnið slapp þó betur en á horfði, en ekki var um alvarlega áverka að ræða.

Þá fékk lögreglan upplýsingar um svokallað unglingapartý í heimahúsi í bænum síðustu helgi.  Svo virðist sem heimasætan hafi ákveðið að bjóða til samkvæmis í óþökk foreldranna sem voru staddir á fastalandinu, eins og lögreglan sjálf orðað það.

Foreldrarnir óskuðu eftir að lögreglan stöðvaði samkvæmið og var það auðsótt mál. Nokkur ungmenni á aldrinum 14 til 18 ára voru stödd í gleðskapnum, og voru einhverjir þeirra undir áhrifum áfengis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×