Innlent

Uppselt á Iceland Airwaves

Mugison er meðal þeirra sem mun taka lagið á hátíðinni.
Mugison er meðal þeirra sem mun taka lagið á hátíðinni.
Nú í morgun seldust upp síðustu miðarnir á Iceland Airwaves, fimm vikum fyrir hátíð. Aldrei hefur selst upp svo fljótt og því ríkir mikil gleði hjá skipuleggjendum Iceland Airwaves.

Fjölmörg tónlistaratriði verða í boði á hátíðinni, en 80 listamenn munu stíga á stokk. Meðal þeirra sem munu taka lagið eru listamennirnir Mugison, Sinéad O'Connor (IE), James Murphy DJ set (US), Dikta, Iceage (DK), Mr. Silla, Blaz Roca, Raised Among Wolves (DK) og fjölmargir aðrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×