Erlent

40 sjálfsvíg á dag í S-Kóreu

Tíðni sjálfsvíga hefur tvöfaldast í Suður-Kóreu á síðustu árum. Þetta sýna nýjar tölur. Tölurnar sýna að árið 2009 frömdu meira en 40 manns sjálfsvíg á hverjum degi, sem eru tvöfalt fleiri en tíu árum fyrr.

Suður-Kórea hefur einna hæst hlutfall sjálfsvíga í heiminum. Þrýst hefur verið á stjórnvöld að aðhafast í þessum málum.

Lög hafa verið sett sem leggja meiri ábyrgð á herðar stjórnvalda, og nú stendur til að opna hjálparstofnanir víða um landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×