Innlent

Umferðarstofa: Lífið er mikils virði

Eins og sést á bílnum, þá er maðurinn beinlínis heppinn að hafa sloppið lifandi frá slysinu.
Eins og sést á bílnum, þá er maðurinn beinlínis heppinn að hafa sloppið lifandi frá slysinu. Mynd / Egill
„Það virðist vera eitthvað í mannlegu eðli sem veldur því að menn missa hreinlega stjórn á sér," segir Sigurður Helgason, starfsmaður Umferðarstofu, um kappakstur á götum úti.

Þrjú slys hafa orðið á skömmum tíma sem öll mega rekja til glæfraaksturs á götum úti þar sem ökumenn kepptu við hvorn annan á gríðarlegum hraða.

Eitt skiptið endaði með harmleik; þá lést Eyþór Darri Róbertsson, degi áður en hann varð 18 ára gamall.

Nýjasta slysið er heldur sérkennilegt. Þar öttu kappi 25 ára ökumaður og svo 67 ára gamall maður.

„Það er ekki ólíklegt að sá maður sé afi einhvers sem er með ökuréttindi," segir Sigurður sem þykir aksturslag mannsins ekki beinlínis til fyrirmyndar.

Þrátt fyrir að mikið hafi verið rætt um kappakstur á götum úti undanfarnar vikur þá eru jákvæð teikn á lofti. „Tilvikunum hefur stórfækkað. Þar spilar markviss fræðsla miklu máli," segir Sigurður en tryggingafélögin, og Umferðarstofa um tíma, stóðu að námskeiði fyrir unga ökumenn, þar sem þeir voru fræddir um alvarleika hraðaksturs.

Þá er einnig til annað úrræði þar sem hægt er að setja ökumenn í akstursbann, í kjölfarið þurfa þeir að sækja dýrt námskeið og þaðan verða þeir að útskrifast með láði til þess að endurheimta ökuskírteinið.

Samt sem áður er alltaf eitthvað um hraðakstur. Enn er spyrnt á götum úti og svo virðist sem ökumenn, ungir sem aldnir, taki ekki mark á fregnum um dauðaslys vegna hraðaksturs.

„Það er bara ein grundvallarhugsun sem þarf að komast inn í kollinn, það er að menn átti sig á því að lífið er mikils virði," segir Sigurður að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×