Innlent

Siglt frá Þorlákshöfn í dag

Vegna veðurs og öldugangs í Landeyjahöfn verða allar ferðir Herjólfs í dag farnar til og frá Þorlákshöfn.

Siglt verður frá Vestmannaeyjum klukkan 7:30 og 15:00, en frá Þorlákshöfn klukkan 11:15 og 19:00.

Ákvörðun um framhald siglinga á morgun, laugardag, er að vænta klukkan 16:00 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×