Innlent

Þrjú verkalýðsfélög eiga eftir að semja

Samningaviðræðum verður fram haldið hjá Ríkissáttasemjara í dag því samningum er ekki lokið við þrjú verkalýðsfélög innan ASÍ.

Það eru verkalýðsfélögin í Þingeyjasýslum, á Þórshöfn og á Akranesi, vegna starfsmanna Klafa, sem er þjónustufyrirtæki í eigu Elkem og Norðuráls.

Þá mun ekki vera búið að ganga enadnlega frá launaliðum hjá Norðuráli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×