Innlent

Hreyfingin vill fella kjarasamningana

Opinn fundur Hreyfingarinnar, sem haldinn var á Kornhlöðuloftinu í gærkvöldi, hvetur launþega til þess að láta ekki blekkjast af því auma tilboði, sem felst í ný gerðum kjarasamningum, eins og það er orðað í tilkynningu frá fundinum, og mælir með að samningurinn verði felldur.

Þar segir einnig að samningsupphæðir dugi engan veginn fyrir því fjárhagslega tjóni, sem launþegar hafa orðið fyrir á undanförnum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×