Erlent

Verkamenn í demantanámum pyntaðir

Afhjúpun Panorama gæti komið í veg fyrir að viðskiptabanni á demanta frá Zimbabve verði aflétt.
Afhjúpun Panorama gæti komið í veg fyrir að viðskiptabanni á demanta frá Zimbabve verði aflétt. MYND/AP
Öryggissveitir Mugabes forseta í Zimbabve halda úti fangabúðum þar sem verkamenn í demantanámum landsins eru pyntaðir á hrottalegan hátt. Þetta kemur fram í fréttaþættinum Panorama á BBC en þar er rætt við fórnarlömb sem komist hafa lífs af úr búðunum.

Búðirnar eru staðsettar við demantanámurnar í Marange héraði en Evrópusambandið hefur nú á prjónunum að slaka á viðskiptabanni með demanta frá Zimbabve sem verið hefur í gildi síðustu ár. Fregnirnar úr fangabúðunum gætu þó sett strik í reikninginn hvað varðar þær áætlanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×