Erlent

Átta látnir eftir skotárás í Ohio

Nágrannar syrgja í hverfinu þar sem skotárásin átti sér stað.
Nágrannar syrgja í hverfinu þar sem skotárásin átti sér stað. Mynd/AP
Karlmaður myrti átta manns í gærmorgun í skotárás sem breiddi úr sér til þriggja heimila í smábænum Copley í Ohio-fylki í Bandaríkjunum.

Samkvæmt lögreglu byrjaði maðurinn á því að skjóta kærustuna sína á heimili þeirra, drap næst bróður hennar og þar næst fjóra nágranna í næsta húsi. Hann náði að skjóta tvo til viðbótar áður en hann féll sjálfur í skotbardaga við lögreglu.

Blaðamannafundur verður haldinn um atvikið í dag, þar sem nánari upplýsingar munu koma í ljós.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×