Erlent

38 hermenn látinir í þyrluslysi

Mynd/AFP
31 bandarískur hermaður og sjö afganskir týndu lífinu í nótt þegar þyrla bandaríska hersins brotlenti í Afganistan. Óvíst er hvað olli brotlendingunni en Talíbanar segjast hafa skotið þyrluna niður.

Þyrlan var að flytja mennina aftur til herstöðvar að lokinni heraðgerð gegn Talíbönum, þar sem átta uppreisnarmenn voru drepnir.

Talið er að um sé að ræða mesta mannfall bandaríska hermanna í Afganistan frá því aðgerðir hófust í landinu árið 2001.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×