Erlent

Stálu tólf þúsund eggjum og köstuðu í bíla

Ungmennin stálu tólf þúsund eggjum af hænsnabúinu og köstuðu þeim í bíla sem keyrðu undir brú.
Ungmennin stálu tólf þúsund eggjum af hænsnabúinu og köstuðu þeim í bíla sem keyrðu undir brú. Mynd úr safni
Um tólf þúsund eggjum var stolið af hænsnabúi í Sussex á Englandi á þriðjudaginn.

Lögreglan fékk tilkynningu um hádegisbil þegar að bóndinn áttaði sig á því að eggjunum hafði verið stolið.

Þrjár konur á aldrinum 17 til 19 ára og tíu karlar á aldrinum 16 til 21 árs voru síðar um daginn handtekin eftir að lögreglumenn króuðu bíla þeirra af á brú sem er nálægt hænsnabúinu.

Þar stóðu ungmennin og köstuðu eggjum í bíla sem keyrðu undir brúnna.

Þau eiga ákæru yfir höfði sér vegna athæfisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×