Erlent

Rómverskur guð birtist fyrir tilviljun

Myndband af andliti sem sést mótast í skýjum í Kanada gengur eins og eldur um sinu á veraldarvefnum þessa daganna.

Myndbandið hefur fengið rúmlega 300 þúsund heimsóknir á youtube á innan við fjórum dögum en sumir halda því fram að skýin móti fyrir andliti á rómverskum guð. Það var tekið upp í New Brunswick í Kanada þegar að óveður nálgaðist bæinn.

Ef vel er að gáð, sést móta fyrir nefi, munni, augum og skeggi á mannverunni. Hvort það er rétt, verður hver og einn að dæma fyrir sig.

Hægt er að horfa á þetta fróðlega myndband hér að ofan - andlitið birtist eftir um eina og hálfa mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×