Erlent

Rowan Atkinsson á sjúkrahús eftir bílslys

Breski leikarinn Rowan Atkinsson, best þekktur sem mr. Bean, var fluttur á sjúkrahús eftir að hann ók McLaren F1 ofurbíl sínum fyrst á tré og síðan á ljósastaur í Cambridgeskíri.

Við áreksturinn kom upp eldur í bílnum. Í frétt um málið á BBC segir að að meiðsli Atkinson séu minniháttar en hann mun vera brákaður á öxl.

Sjónarvottar segir að Atkinson hafi gengið frá bílnum og beðið ásamt öðrum ökumanni sem kom þarna að eftir að sjúkrabíll kæmi sem og slökkvilið sem slökkti eldinn í bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×