Erlent

Hundur drap unga stúlku

Fjögurra ára stúlka missti lífið.
Fjögurra ára stúlka missti lífið.
Fjögurra ára stelpa lést í dag í Ástralíu þegar pitbull hundur réðst á hana, þar sem hún sat og horfði á sjónvarp. Móðir stúlkunnar var viðstödd árásina en gat ekkert gert þegar hundur nágrannans ruddist inn í stofuna og réðist á barnið.

Hundurinn hefur þegar verið svæfður en ekki er ljóst hvort eigandinn muni sæta ákæru. Slysið hefur sett af stað umræður um hvort banna beri ákveðnar tegundir hunda í Ástralíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×