Erlent

Þekkir þú þennan mann?

Óli Tynes skrifar
Nicked.
Nicked.
Það er bankað upp hjá mörgum undrandi óeirðaseggnum  í Bretlandi þessa dagana. Útifyrir eru lögreglumenn sem draga þá burt í handjárnum. Þetta á sér skýringu. Breskir fjölmiðlar birta miskunnarlaust myndir af fólki sem tekur þátt í innbrotum, íkveikjum og öðrum skemmdarverkum. Lögreglan biður almenning að bera kennsl á skemmdarvargana og það eru nógir til þess.

 

Lögreglumennirnir fara því heim til dónanna með óhrekjandi sönnunargögn upp á vasann. Ekki er vitað hvort búið er að handtaka manninn á meðfylgjandi mynd sem kveikti í Selfridges verslun í Lundúnum. En hann má þá eiga von á því að þung dynji á hurðum högg því verslunin gereyðilagðist í eldinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×