Erlent

Ekki nota túrbaninn strákar

Óli Tynes skrifar
Kabúmmmm.
Kabúmmmm.
Hamid Karzai forseti Afganistans hefur átt fund með klerkaráði landsins og beðið það um að hvetja sjálfsmorðskandídata Talibana til þess að fela ekki sprengjur í túrbönum sínum eða öðrum trúarlegum táknum.

 

Á síðustu fimm vikum hafa talibanar myrt tvo háttsetta embættismenn í Kandahar með þessum hætti. Það er kaldhæðnislegt að hugsa til þess að múslimaklerkar dæmdu danska skopmyndateiknarann Kurt Westergaard til dauða á sínum tíma fyrir að teikna Múhameð spámann með sprengju í túrban sínum.

 

Talibanar hafa einnig notað kvennaklæðnaðinn búrka til að fela sprengjur, en búrkan felur íveranda sinn frá toppi til táar.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×