Erlent

Ómönnuð sprengjuflugvél gerði árás í Pakistan

Pakistönsk yfirvöld segja að ómönnuð sprengjuvél Bandaríkjahers hafi banað 20 íslömskum hryðjuverkamönnum í árás á hérað við afgönsku landamærin. 16 hinna föllnu eru sagðir hafa verið Afganir en hinir pakistanskir.

Árásin var gerð á hús þar sem mennirnir höfðu komið saman. Bandaríkjamenn hafa í miklum mæli beitt árásum sem þessum á svæðinu en leyniþjónusta CIA sér um aðgerðirnar.

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa aldrei viðurkennt að standa á bakvið þær og hefur málið valdið miklum titringi á milli pakistanskra yfirvalda og þeirra í Washington.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×