Innlent

Metflugumferð yfir Ísland

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Yfirflug yfir Ísland. Mynd/ Hjördís Guðmundsdóttir.
Yfirflug yfir Ísland. Mynd/ Hjördís Guðmundsdóttir.
Aldrei hafa fleiri flugvélar í millilandaflugi flogið um íslenska flugstjórnarsvæðið á einum mánuði eins og í síðasta mánuði. Alls flugu 12.439 vélar um svæðið en fyrra metið 12.114 var sett í júlí 2008.  Flugumferðinni er stjórnað úr flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. 

Að sögn Þórdísar Sigurðardóttur, yfirflugumferðarstjóra hjá Isavia var umferðin jöfn og þétt alla daga „Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík er vel í stakk búin til að takast á við aukna flugumferð enda vinnur þar samhentur hópur starfsmanna Isavia," segir Þórdís í fréttatilkynningu. Hún vildi einnig þakka þakka starfsmönnum Isavia í fjarskiptastöðinni í Gufunesi sem unnu vel á þessum álagstíma.  Þrátt fyrir snögga og skyndilega umferðarminnkun í kringum eldgos í Grímsvötnum í maí hefur heildarumferð yfir árið aukist um 8,5% frá því í fyrra. 

Flugumferð yfir Norður Atlantshafið er nú óðum að ná sér eftir niðursveifluna sem varð á árunum 2008/2009 og flugumferð vex nú jafnt og þétt í hverjum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×