Innlent

Landsbankinn setur ofan í við Lilju Rafney

Lilja Rafney
Lilja Rafney
Forsvarsmenn Landsbankans lýsa yfir vonbrigðum með viðbrögð formanns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, Lilju Rafneyjar Magnúsardóttur, við umsögn bankans um fyrirliggjandi frumvarp um breytingar á stjórnun fiskveiða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér.

Lilja sagði meðal annars í viðtali við Fréttablaðið í dag: „Ég er ekki sammála þeim heimsendaspám sem þarna koma fram".

Í yfirlýsingu Landsbankans segir meðal annars að bankinn gæti varfærinna sjónarmiða við mat á útlánum í dag og einnig í umsögn sinni um lagafrumvarp um stjórn fiskveiða. Landsbankinn lítur á málið út frá hagfræðilegum og viðskiptalegum sjónarmiðum og telur að fyrirliggjandi frumvarp geri lánveitingar til sjávarútvegs mun áhættusamari en þær eru nú. Stjórnendur bankans telja það skyldu sína að benda á þá áhættu.

Svo segir orðrétt:

Þessi niðurstaða er ítarlega rökstudd með tilliti til nýtingartíma, framsals aflaheimilda, veðhæfni aflaheimilda og annarra eigna og meðferð fullnustueigna. Lánakjör margra sjávarútvegsfyrirtækja munu líklegast versna vegna þess að tryggingar fyrir lánum verða lakari og svigrúm útgerða til að gera nauðsynlegar breytingar í rekstri, fjárfesta og hagræða, verður fyrirsjáanlega mun þrengra en nú er.

Starfsmenn Landsbankans hafa lært af hruninu. Útlánareglur Landsbankans hafa verið endurskoðaðar frá grunni og markvisst hefur verið dregið úr áhættu í lánveitingum undanfarin ár. Núverandi stjórnendur bankans stunda varfærna lánastarfsemi.

Annar lærdómur sem dreginn hefur verið er að rökstudd gagnrýni er af hinu góða og að málefnaleg umræða verður að fá meira svigrúm. Þessa hugsun hafa stjórnendur innleitt í bankanum og stjórnmálamenn þurfa líka að hafa þetta í huga. Á þennan þátt var rækilega bent í Rannsóknarskýrslu Alþingis.

Hægt er að nálgast viðtal við Lilju hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Ekki sammála heimsendaspám

„Ég er ekki sammála þeim heimsendaspám sem þarna koma fram,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, spurð um umsagnir SA, LÍÚ og SF annars vegar og Landsbankans hins vegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×