Innlent

Tvö slys á Bústaðavegi með stuttu millibili

Frá mótórhjólaslysinu á Bústaðavegi
Frá mótórhjólaslysinu á Bústaðavegi Mynd/Vilhelm
Kona var flutt á slysadeild eftir að keyrt var á hana á gatnamótum Grensásvegar og Bústaðavegar um klukkan korter yfir tvö í dag. Ekki er vitað nánar um tildrög slyssins og ekki liggur fyrir hversu alvarlega hún er slösuð.

Stuttu síðar var ekið á mótórhjólamann á Bústaðaveginum, nánar tiltekið á brúnni yfir Kringlumýrarbraut. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu liggja tildrög slyssins ekki fyrir en ökumaðurinn er ekki alvarlega slasaður.

Samkvæmt upplýsingum frá Árekstri.is hafa orðið tíu umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag. Enginn slasaðist alvarlega í slysunum en tveir bílar voru dregnir burt með krana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×