Innlent

Áhyggjuefni ef 30% þurfa stuðning við lestur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Íslensk börn eru ágæt í lestri. Mynd/ Getty.
Íslensk börn eru ágæt í lestri. Mynd/ Getty.
Árangur barna í öðrum bekk grunnskóla er fagnaðarefni, segir Guðmundur B. Kristmundsson, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.. Samkvæmt niðurstöðum lestrarskimunarprófs í fyrra geta um 70% nemenda í öðrum bekk grunnskóla í Reykjavik lesið sér til gagns samkvæmt þeim viðmiðum sem sett hafa verið.

Eins og Vísir sagði frá í gær er þessi árangur sá besti sem sést hefur frá upphafi lesskimana sem hófust í grunnskólum borgarinnar árið 2002. Þessi árangur er sérstaklega merkilegur í ljósi þess að lesskilingur hjá sjö ára börnum, það er að segja börnum í öðrum bekk grunnskóla, virðist gefa vísbendingu um árangur í íslensku í fjórða bekk grunnskóla.

„Ef börnunum gengur vel í byrjun þá búið þau að því um alla tíð. Þess vegna er svo rosalega mikilvægt að menn skilji það og skynji að það þarf bara góða kennara, gott efni og gott utanumhald á byrjunarstiginu,“ segir Guðmundur B. Kristmundsson, dósent. Hann bendir á að góð niðurstaða í öðrum bekk skili sér á samræmdu könnunarprófi í fjórða bekk. Það væri einnig fróðlegt að kanna hvernig börn komi út í samræmdum könnunar prófum síðar í framtíðinni.

Guðmundur segir þó verulegt áhyggjuefni að um 30% barna í öðrum bekk þurfi stuðning. Hann segir ýmsar leiðir til að styðja börnin. Nauðsynlegt og gott starf sé unnið í leikskólum. Foreldrar ungra barna þurfi líka að fá upplýsingar um það hvað það þýði að lesa fyrir börn og tala við börn.


Tengdar fréttir

Besti árangur á lestrarprófi

Um 71% nemenda í öðrum bekk í grunnskóla geta lesið sér til gagns samkvæmt þeim viðmiðum sem sett hafa verið. Þetta sýnir könnun sem gerð var á lesskilningi síðasta vor. Þetta er besti árangur frá upphafi lesskimana sem hófust í grunnskólum borgarinnar árið 2002. Af þeim 1.241 nemanda í öðrum bekk sem tók lesskimunarprófið töldust 875 þeirra geta lesið sér til gagns. Aftur á móti náðu 366 nemendur í 36 grunnskólum ekki þessum árangri eða 29% og þarf sá hópur stuðning í lestri með einstaklingsáætlun eða einstaklingsnámskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×