Innlent

Ísland er eins og tilraunastofa

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eiríkur Bergmann Einarsson vinnur að mikilli rannsókn um aðdraganda og eftirmála hrunsins.
Eiríkur Bergmann Einarsson vinnur að mikilli rannsókn um aðdraganda og eftirmála hrunsins.
Ísland er eins og tilraunastofa fyrir afdrif vestrænna hagkerfa við fjármálakreppu, segir Eiríkur Bergmann Einarsson, doktor í stjórnmálafræði.

Eiríkur hefur ásamt fræðimönnunum Claes Belfrage og David Berry unnið í þrjú ár að rannsókn á aðdraganda Íslandshrunsins og hugmyndina um endurreisn Íslands. Rannsóknin verður birt í hinu virta fræðiriti Economy and Society og er hún talin mikilvægur þáttur í stóru alþjóðlegu rannsóknarneti í menningarlegri stjórnmálahagfræði.

Eiríkur Bergmann segir að hrunið á Íslandi megi rekja til hugmyndafræði afregluvæðingar sem hafi leitt af sér veikar stoðir. „Þetta er auðvitað vandi sem ríki alls staðar í kringum okkur eiga við að etja, en birtist með miklu skýrari hætti," segir Eiríkur Bergmann. Hann segir það alþekkt í stjórnmálafræði að nota dæmi sem gengur lengra en flest önnur dæmi til þess að skýra fyrirbæri. Þess vegna veki Ísland áhuga fræðimanna og fjölmiðla.

Eiríkur Bergmann segir líka að eftir hrun hafi þróast ný gagnrýnin skipan sem meðal annars hafi verið tjáð í búsáhaldarbyltingu þar sem stjórnmálamenn og lykilstofnanir voru sakaðar um að hafa ýtt undir uppgang, bólumyndun og hrun efnahagskerfisins. Gagnrýnin beindist einnig að útlöndum eins og sjá mátti í Icesave-deilunni.

Í hinni nýju gagnrýnu skipan hafi vantrú á kapítalisku fjármálakerfi grafið um sig og vaxandi efasemdir séu uppi varðandi réttlætingu fyrir endurreisn þess kerfis. Slíkt sé ekki óþekkt í sögunni en í yfirstandandi baráttu um hugmyndina um endurreisn Íslands felst einstak tækifæri til að rannsaka möguleika hins kapítalíska kerfis á að réttlæta sjálft sig eftir slíkt efnahagshrun.

Eiríkur Bergmann og samstarfsmenn hans munu kynna áfanganiðurstöður rannsóknar sinnar á alþjóðlegri ráðstefnu stjórnmálafræðinga, ECPR, í Reykjavík á morgun klukkan eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×