Innlent

Sex handteknir á Selfossi

Sex voru handteknir á Selfossi í gær þegar lögregla gerði húsleit í bænum. Málið hófst á því að bifreið var stöðvuð þar sem grunur lék á að ökumaðurinn væri undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bílnum fannst eitthvað að marijúana í neysluskömmtum.

Mennirnir í bílnum voru handteknir og ákvað lögreglan síðan að ráðast í í húsleit á heimili ökumannsins. Þar voru þrír fyrir á fleti sem einnig voru handteknir. Engin efni fundust í íbúðinni en þar voru tól og tæki til fíkniefnaneyslu.

Mennirnir voru yfirheyrðir fram á kvöld og gengust tveir þeirra við að eiga efnin sem fundust í bílnum. Þeim var síðan sleppt að loknum yfirheyrslum og var sá síðast strikaður út af gestalistanum, eins og lögreglan orðar það, klukkan ellefu í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×