Innlent

Tólf ára piltar seldu unglingum áfengi á Menningarnótt

Mynd úr safni
Um þrjátíu unglingar voru fluttir í ungmennaathvarf, sem var komið upp í safnaðarheimili Dómkirkjunnar á menningarnótt síðastliðinn laugardag.

Ástand margra þeirra var heldur bágborið sökum áfengisdrykkju en þeir sem ekki höfðu aldur til að vera úti við var vísað heim eða hringt í foreldra og forráðamenn sem komu og sóttu krakkana.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að þetta hafi ekki verið einu afskipti lögreglunnar af unglingum með áfengi. Talsverðu magni var hellt niður og voru tveir tólf ára piltar staðnir að verki þegar voru að selja öðrum unglingum áfengi. Haft var samband við forldrana sem komu og sóttu þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×