Noregskonungur klökknaði við minningarathöfn Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. ágúst 2011 14:22 Haraldur Noregskonungur ásamt Sonju eiginkonu sinni. Mynd/ AFP.
Haraldur Noregskonungur var klökkur þegar hann talaði á minningarathöfn í Osló um þá sem fórust í Útey þann 22. júlí síðastliðinn. Athöfnin fer fram í dag og eru um sex þúsund manns viðstaddir. Þeirra á meðal eru þjóðarleiðtogar allra Norðurlandanna, eftir því sem Jyllands Posten greindi frá. „Nú hafa næstum öll orð verið sögð. Það hefur svo margt verið sagt og svo mikið grátið," sagði Haraldur konungur í ræðu sinni. „Í sorginni hef ég jafnframt þörf fyrir að þakka. Þakka þeim, sem ákváðu að gefast ekki upp. Og ég vil líka þakka þeim sem aðstoðuðu," sagði Haraldur. Hann þakkaði lögreglunni, forsætisráðherranum, hjálparsamtökum og þeim einstaklingum sem hjálpuðu ungmennunum í Útey. Haraldur konungur var sá fyrsti sem hélt ræðu en það mun Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, einnig gera. Á meðal þeirra sem eru við minningarathöfnina eru Viktoría krónprinsessa Svía og Friðrik krónprins Danmerkur. Fredrik Reinfeld, forsætisráðherra Svía og Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur eru einnig viðstaddir. Þá er Tarja Halonen, forseti Finnlands, og Jyrki Katainen forsætisráðherra einnig viðstaddir. Frá Íslandi eru svo Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Mest lesið Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Erlent Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Innlent Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Erlent Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Innlent Handteknir við að stela dósum úr gám Innlent Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Erlent Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Innlent Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Börn stærsti hluti látinna eftir árás á skóla FBI dregur forstjórann í land og staðfestir að Trump hafi orðið fyrir byssukúlu Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Þriðja ungmennið handtekið vegna drápsins í Landskrónu Fundu óvænt merki um mögulegt örverulíf á Mars Weinstein lagður inn á sjúkrahús með Covid-19 og lungnabólgu Vaxandi áhrif hlýnunar á úrkomumynstur og fellibyli Hugmyndafræðilegur ágreiningur klýfur Murdoch-fjölskylduna Obama-hjónin lýsa yfir stuðningi við Harris Skemmdarverk unnin á hraðlestarlínum umhverfis París Einn valdamesti fíkniefnabarón heims handtekinn Neitar að staðfesta kappræður við Harris fyrr en eftir útnefninguna Sagðist ekki myndu þegja um Gasa eftir fund með Netanyahu Trump veltir fyrir sér möguleikanum á því að vera myrtur af Írönum Skógareldar í Jasper-þjóðgarðinum dreifast í byggð Gögn benda til aðkomu Sameinuðu arabísku furstadæmanna í Súdan Ruslabelgir frá Norður-Kóreu raska flugferðum og kveikja eld Fjórtán ára stúlka myrt í Svíþjóð og jafnaldrar hennar í haldi Fundu lík fimm Ísraelsmanna í Khan Younis Flugferð Icelandair aflýst vegna mótmæla á flugvelli Sjá meira